18.11.26 - 11:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æstur í að fá Andra Lucas

Andri Lucas Guðjohnsen.

Mynd: Blackburn

Andri Lucas Guðjohnsen.

Mynd: Blackburn
Tom Garratt, vinsæll breskur hlaðvarpsstjórnandi, er æstur í að fá Andra Lucas Guðjohnsen til West Bromwich Albion.
Andri Lucas hefur farið á kostum með Blackburn Rovers í ensku Championship-deildinni og er næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar með tíu mörk.

Garratt heldur úti The Pyramid Podcast sem er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Englandi. Þar hefur hann verið duglegur að lýsa yfir aðdáun á Andra. Nýverið sagði hann:
„Ég er að biðla til West Brom. Finnið peningana einhvers staðar. Þeir eru til einhvers staðar. Farið og kaupið Guðjohnsen."
„Hann er næst besti sóknarmaður deildarinnar."
Það er ólíklegt að Andri Lucas fari til West Brom á þessum tímapunkti og líklegra að hann fari í eitthvað stærra ef hann yfirgefur Blackburn.