Markús Páll: Reynir Le skuldar mér út að borða

Átti magnað tímabil í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marki fagnað í fyrstu umferð gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Marki gegn Stjörnunni fagnað innilega.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Besti ungi leikmaður deildarinnar og á bekknum í liði ársins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þakklátur fyrir tækifærið frá Lárusi strax í byrjun.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mikael skoraði gegn Lúxemborg.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd af Reyni Leóssyni frá 2018.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gæti ekki verið stoltari af Mikael.

Mynd: EPA

Átti magnað tímabil í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markús kom til ÍA frá ítalska félaginu Triestina síðasta vetur og fæstir vissu mikið um hann. Hann er uppalinn Framari sem fór út til Ítalíu eftir tímabilið 2024. Sama vetur spilaði hann fjóra leiki með U19 landsliðinu.
Hann skoraði fimmtán mörk og endaði sem næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar. Í haust hefur hann verið orðaður við erlend félög og þar á meðal eru Rosenborg í Noregi og Silkeborg í Danmörku.
Fótbolti.net ræddi við Markús í dag.

„Held það sé augljóst að Markús Páll fer út í vetur" - Orðaður við Rosenborg
Hvernig gerir þú upp tímabilið með ÍA?
„Frá mér séð var þetta svolítið upp og niður hjá okkur sem er skiljanlegt, mikið af breytingum en að fara úr botnsæti yfir í topp fjóra er í minum augum frábær árangur. Það voru nokkrir leikir sem við missum stig sem við áttum ekki að leyfa gerast."
Besti staðurinn fyrir unga leikmenn
Hvernig líður þér á Akranesi?
„Fyrir unga leikmenn er Skaginn örugglega besti staðurinn til að vera á, mér liður vel á Skaganum. Það er mikill metnaður lagður í starfið og hugsað vel um mann. Það er ekki hægt að biðja um meira."
Þakklátur fyrir tækifærið strax í byrjun
Komandi inn í tímabilið, bjóst þú við því að vera í lykilhlutverki í liðinu?
„Erfitt að segja, þeir bjarga mér úr erfiðri stöðu á Ítaliu seint á undirbúningstímabilinu svo ég var ekki alveg viss hvar ég væri staddur. En Lárus gaf mér strax sénsinn í fyrsta æfingaleiknum og ég er mjög þakklátur fyrir það. Eftir það byrjaði boltinn bara að rúlla og var ekki hægt að líta um öxl."
Stefndi á fimmtán mörk og efri hlutann
Settir þú þér markmið fyrir tímabilið?
„Já, ég og pabbi töluðum um þetta, hann sagði tíu mörk en mér fannst það ekki nógu mikið þannig ég setti það á fimmtán og að enda í efri hlutanum í deildinni."
ÍA tryggði sér sæti í efri hlutanum í 22. umferðinni og Markús skoraði sitt fimmtánda deildarmark í lokaumferðinni.
Fyrsta markið stendur upp úr
Var eitthvað mark sem stóð upp úr?
„Ætli það sé ekki bara fyrsta markið? Eftir það vissi ég alveg að ég væri með þetta og þá fór svolítið pressan um að ná að skora fyrsta markið."
Fyrsta markið skoraði Markús gegn Fram í fyrstu umferð og setti það tóninn fyrir tímabilið.
Mun velja það sem hentar best
Hvað vilt þú að gerist í vetur, er það draumurinn að það komi heillandi tækifæri erlendis í vetur?
„Eins og staðan er núna er ég voða lítið að pæla í því, er bara að æfa og ef eitthvað gerist þá gerist það, en auðvitað er það draumur að fara út. Maður hefur upplifað það áður og er ekki að hoppa á fyrsta tækifærið að komast aftur út heldur hvað hentar mér best. Svo eru spennandi hlutir að gerast upp á Skaga þannig ef maður fer ekki þá er bara alvöru samkeppni þar."
Rosaleg tímasetning á skilaboðum Marons Birnis
Maron Birnir sagði skemmtilega sögu um aðdragandann að félagaskiptum Markúsar til ÍA í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í síðasta mánuði og má lesa meira um það í hlekknum neðst í greininni.
Hvernig var þín upplifun, er allt rétt sem hann sagði? Hver var lykillinn að því að ÍA varð fyrir valinu?
„Já, mest allt sem hann sagði var rétt. Það var bara rosaleg tímasetningu á þessu hjá honum, eins og þetta hafi bara verið skrifað í skýin."
„Ég þarf að þakka Reyni Leós, hann reyndi heillengi að fá mig og hafði rosalega trú á mér sem leikmanni. En hann skuldar mér út að borða, hann var búinn að lofa mér því eftir þetta góða tímabil."
Reynir Leósson er fyrrum leikmaður ÍA, hann er faðir Marons Birnis og núverandi formaður meistaraflokksráðs hjá ÍA.
Gæti ekki verið stoltari af Mikael
Eldri bróðir Markúsar er landsliðsmaðurinn Mikael Egill sem er fastamaður í liði Genoa í ítölsku Serie A. Hann skoraði m.a. mark gegn AC Milan á dögunum og skoraði þriðja mark landsliðsins í sigrinum á Lúxemborg á mánudag.
Er hann mikil fyrirmynd?
„Já, ég er bara rósalega stoltur. Hann stendur sig mjög vel og ég sé ekki annað fyrir mér heldur en að hann fari í eitthvað enn stærra."
Hver er munurinn á ykkar leikstílum?
„Við erum svo ólíkir leikmenn, hann er miklu kraftmeiri en ég. Þegar við vorum yngri þá reyndi ég að gera allt sem eldri bróðir minn var að gera. Stoltið gæti ekki verið meira," segir Markús að lokum.

Marki fagnað í fyrstu umferð gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Marki gegn Stjörnunni fagnað innilega.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Besti ungi leikmaður deildarinnar og á bekknum í liði ársins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þakklátur fyrir tækifærið frá Lárusi strax í byrjun.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mikael skoraði gegn Lúxemborg.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd af Reyni Leóssyni frá 2018.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gæti ekki verið stoltari af Mikael.

Mynd: EPA
