Fotbolti.net
20.10.26 - 08:45
Innkastið

Efnilegastur 2026 - Stjarna fæddist

Markús Páll Ellertsson (ÍA)

Markús Páll Ellertsson er besti ungi leikmaður tímabilsins.

Markús Páll Ellertsson er besti ungi leikmaður tímabilsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í Innkastinu var opinberað val á þeim bestu í Bestu deild karla 2026. Markús Páll Ellertsson, tvítugur sóknarmaður ÍA, er valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar.

Markús Páll hefur verið sjóðheitur, sprungið út og raðað inn mörkum í Bestu deildinni. Stjarna fæddist í deildinni og það er ansi ólíklegt að þessi tvítugi sóknarmaður verði að spila hér á landi næsta sumar. Hann hefur verið orðaður við ýmis félög á erlendri grundu.
„Held það sé augljóst að Markús Páll fer út í vetur" - Orðaður við Rosenborg
TENGT EFNI

„Held það sé augljóst að Markús Páll fer út í vetur" - Orðaður við Rosenborg

Markús hefur skorað fjórtán mörk á sínu fyrsta heila tímabili í Bestu deildinni. Hann er uppalinn hjá Fram og er yngri bróðir landsliðsmannsins Mikaels Egils sem spilar með Genoa á Ítalíu.

„Það segir sitt um hvað við eigum marga frambærilega og góða leikmenn fram á við. Hann kemst ekki í U21 landsliðið en er búinn að vera stórkostlegur," sagði Haukur Páll Sigurðsson í Innkastinu.

Sjá einnig:
Daði Berg Jónsson efnilegastur 2025
Gísli Gottskálk Þórðarson efnilegastur 2024
Eggert Aron Guðmundsson efnilegastur 2023
Kristall Máni Ingason efnilegastur 2022
Sævar Atli Magnússon efnilegastur 2021
Valgeir Lunddal efnilegastur 2020
Finnur Tómas Pálmason efnilegastur 2019
Willum Þór Willumsson efnilegastur 2018
Alex Þór Hauksson efnilegastur 2017
Böðvar Böðvarsson efnilegastur 2016
Oliver Sigurjónsson efnilegastur 2015
Aron Elís Þrándarson efnilegastur 2014
Hólmbert Friðjónsson efnilegastur 2013
Efnilegastur 2026 - Stjarna fæddist
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.