Fotbolti.net
30.10.26 - 13:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rísandi tónlistarstjarna benti ÍA á Markús

Rísandi tónlistarstjarna benti ÍA á Markús
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tónlistarmaðurinn Maron Birnir Reynisson var í dag gestur í Dr. Football. Maron Birnir, sem er fæddur 2006, sagði frá því í þættinum að hann hefði bent föður sínum á Markús Pál Ellertsson síðasta vetur.

Markús Páll er jafnaldri Marons og mættust þeir í yngri flokkunum. Maron, sem lék með Fylki upp í 2. flokk, vissi af stöðu Markúsar hjá ítalska félaginu Triestina sem er í ítölsku Seríu C.

Maron benti föður sínum, Reyni Leóssyni, sem er formaður meistaraflokksráðs karla, á Markús og í kjölfarið fékk ÍA nokkuð óvænt Markús í sínar raðir.
„Markús Páll er góður vinur minn, við vorum saman í MS og vorum bestu vinir. Hann var búinn að vera í einhverju skítaliði í eitt ár í Seríu C og ég vissi að hann væri óhamingjusamur þarna, var ekki einu sinni að æfa með aðalliðinu. Ég hringdi og spurði hvort hann vildi ekki koma til Íslands. Hann sagðist vera á samningi. Ég sagði honum að koma í Skagann, sagði að ég væri með tengingar og ég myndi láta orðið berast."

„Ég heyrði í honum aftur viku síðar, var þá búinn að bera þetta undir pabba sem sýndi áhuga. Ég spurði aftur hvort hann vildi ekki koma í Skagann. Þá segir hann við mig að það séu tveir dagar síðan hann hafði dreymt að hann hefði skrifað undir á Skaganum."

„Pabbi fer á fund með ÍA, þeir vita ekkert um hann. Pabbi setur allt sitt á línuna á að fá hann, út frá mínu orði. Það gengur eftir og Markús skorar 15 mörk í Bestu deildinni, allt í opnum leik,"
segir Maron í þættinum.

Markús átti frábært tímabil á Íslandi, skoraði 15 mörk í deildinni og eitt í bikar, og var valinn besti ungi leikmaður deildarinnar. Hann hefur verið orðaður við félög erlendis, m.a. í Noregi og Danmörku. Miklar líkur eru taldar á því að framherjinn fari í atvinnumennsku í vetur.
Rísandi tónlistarstjarna benti ÍA á Markús
Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.