Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 13:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Danijel Djuric: Það var fíaskó sem er efni í góða bók
Mynd: KA
Í leik með NK Istra.
Í leik með NK Istra.
Mynd: NK Istra 1961
Danijel Dejan Djuric (2003) er mættur aftur í Bestu deildina eftir ár í króatísku úrvalsdeildinni. Danijel var á mála hjá króatíska félaginu NK Istra sem keypti hann af Víkingi í febrúar í fyrra.

Danijel skrifaði undir þriggja ára samning við KA í síðustu viku og keypti KA hann á væna upphæð.

Danijel ræddi við Fótbolta.net um tímann í Króatíu.

„Það var blanda af mörgu (sem gekk ekki upp), ég fékk eiginlega ekki almennilegan séns. Gæinn sem var að spila í minni stöðu, hann var einn af þeim bestu í deildinni. Ég skil það því að einhverju leyti, en mér leið eins og ég þyrfti að fá aðeins meiri séns og með því myndi ég sýna hvað ég gæti. En ég horfi aldrei til baka, bara áfram veginn og ég get ekki beðið eftir því að spila hérna á Brekkunni í sumar," segir Danijel.

Hann virtist á leið til serbneska úrvalsdeildarfélagsins Zeleznicar Pancevo á láni út tímabili, en þau skipti gengu ekki í gegn. Danijel á rætur að rekja til Serbíu því þaðan er faðir hans, Dejan Djuric.

„Það var fíaskó sem er efni í góða bók. Ég fæ samningstilboð klukkan 10 og glugginn lokar klukkan 12. Það eru því tveir tímar sem ég fékk í að græja allt, pappíra og segja já. Ég segi já, fer til Serbíu og skrifa undir fimm mínútur í 12. Það kom einn pappír aðeins of seint, menn sögðu að þetta myndi sleppa. Ég fór til Serbíu, er að æfa og daginn fyrir leik sem ég átti að byrja en þjálfarinn segir svo að umboðsmaðurinn hafi verið að hringja og ég þurfi að fara til baka (til Króatíu). Ég vissi ekki hvað sneri til hægri, vinstri, upp eða niður. Ég þurfti að fara til baka. Þetta var efni í góða bók. Þetta voru vonbrigði, ég sá þetta vel fyrir mér, var ungt lið sem er að berjast um sæti í Sambandsdeildinni. En ég horfi aldrei til baka, bara áfram veginn."

En hvernig var Djuric að fíla Króatíu?

„Djuric var alveg að fíla Króatíu utan fótboltans. Það voru 20 gráður, sól og ég í stórri íbúð með sundlaug í bakgarðinum. Lífið í Króatíu er gott, en ég þurfti bara að spila. Hvað með það að það sé sól og sundlaug í bakgarðinum, ég er í þessu til að spila fótbolta. Ég er núna að fara að gera það sem ég elska, að fara spila fótbolta," segir Danijel.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að neðan.
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Athugasemdir
banner