Danijel Dejan Djuric samdi í síðustu viku við KA. Hann valdi KA fram yfir Breiðablik sem hafi einnig áhuga á að fá hann í sínar raðir. Danijel er uppalinn hjá Hvöt og Breiðabliki. Frá Breiðabliki hélt leiðin til Midtjylland í Danmörku og sumarið 2022 sneri hann aftur til Íslands, æfði með Blikum en samdi svo við Víking og vann þrjá stóra titla.
Hann var sterklega orðaður við Breiðablik áður en hann samdi við KA. Á tíma sínum í Víkingi var Danijel ekki sá vinsælasti á meðal stuðningsmanna Blika og myndaðist hiti milli hans og stuðningsmanna þar sem eldri bróðir Danijels, Nikola Dejan Djuric, spilaði líka hlutverk.
Danijel var til viðtals í dag hér á Fótbolti.net og var spurður út í Breiðablik og valið á KA.

„Valið var á milli Breiðabliks og KA í smá tíma, og KA varð valið," segir Danijel.
Albert Brynjar Ingason sagði frá því í Dr. Football í síðustu viku að Danijel hefði fundað með Breiðabliki og óskað eftir því að fá treyju númer tíu, en Kristinn Steindórsson er með það númer á treyjunni sinni í dag.
Er það rétt og ef já, af hverju?
„Það er rétt, en ég ætla ekki að segja ykkur ástæðuna af hverju. Hún er mjög löng og flókin. Ég vil taka það allt í burtu, ég er í KA og get ekki beðið eftir því að spila með KA. Mér leið eins og hjartað væri alltaf á leiðinni í KA. Hjartað leiddi mig hingað og hjartað lýgur aldrei."
Hvernig verður að mæta Breiðabliki í sumar?
„Það verður held ég öðruvísi en þegar ég var í Víkingi, en það á bara eftir að koma í ljós. Ég veit ekki hvort þeir verði svona eða hinsegin, það kemur bara í ljós. Það er þannig með bíómyndina sem Djuric er að leika í, (hún verður eins og hún verður)," sagði Danijel.
Athugasemdir