19.10.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon
UEFA gefur Infantino tvær vikur til að svara stórum spurningum

Gianni Infantino forseti FIFA.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Gianni Infantino forseti FIFA.

Mynd: EPA
Evrópska fótboltasambandið UEFA setur pressu á FIFA að birta gögn og svara stórum spurningum varðandi stjórnarhætti og ákvarðanatökur.
UEFA hefur sent bréf og krefst svara fyrir 2. nóvember. Á fundi FIFA í síðustu viku baðst Gianni Infantino afsökunar á áformum um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA. Hann gaf hinsvegar ekki ítarlega skýringu á því hvernig tillagan var sett fram.

TENGT EFNI
Infantino biður stjórn FIFA afsökunar - Varaforseti segir hann óhæfan
Theodore Theodoridis, aðalritari UEFA, segir í áðurnefndu bréfi að FIFA hefði ekki enn svarað fjölmörgum grundvallarspurningum. Upplýsingar og skjöl sem hafi verið beðið um hafi ekki enn verið afhent.
Bréfið inniheldur átta síður af spurningum sem fjalla um fjölda málefna; fjárefestingum, friðarverðlaunin og niðurfellingu á leikbanni Folarin Balogun á HM svo eitthvað sé nefnt.
Infantino hefur fengið gagnrýni úr öllum áttum eftir áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA. Tillagan mætti gríðarlegri andstöðu um allan heim og var dregin til baka.