Fotbolti.net
15.10.26 - 16:41
Kári Snorrason

Infantino biður stjórn FIFA afsökunar - Varaforseti segir hann óhæfan

Infantino og Shakira.

Infantino og Shakira.

Canon

Mynd: EPA

Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur beðist afsökunar á umdeildum áformum um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA.

Infantino hætti við áformin eftir harða gagnrýni en hann hafði ekki látið stjórn FIFA vita af fyrirætlunum sínum. Málið var rætt á þriggja og hálfrar klukkustundar fundi stjórnar FIFA í Zurich í dag.
Leita að manni til að knésetja Infantino
TENGT EFNI

Leita að manni til að knésetja Infantino

Á fundinum þurfti Infantino einnig að svara spurningum um frestun á leikbanni Folarins Balogun, friðarverðlaun FIFA ásamt fjárframlögum sem hann bauð fótboltasambanda skyldu þau kjósa með áformum sínum.

Debbie Hewitt, einn af varaforsetum FIFA og formaður enska fótboltasambandsins, segir að Infantino hafi ekki svarað mikilvægum spurningum um málin eða afhent gögn sem óskað hafði verið eftir.

Hún segir að Infantino sé ekki hæfur til að gegna embætti forseta FIFA nema hann veiti fullnægjandi svör. UEFA hefur einnig gagnrýnt Infantino harðlega og ítrekað kallað eftir afsögn hans.

Guardian sagði í morgun leiðtoga evrópska fótboltans vera sannfærða um að þeir myndu finna öflugan frambjóðanda til að fara gegn Infantino í forsetakosningum FIFA á næsta ári.
Debbie Hewitt.

Debbie Hewitt.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.