Fotbolti.net
19.11.26 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson

Jöfnuðu met í dómaramistökum í síðustu umferð

Jöfnuðu met í dómaramistökum í síðustu umferð
Canon

Mynd: EPA

Í hverri viku eru umdeildar ákvarðanir dómara í ensku úrvalsdeildinni skoðaðar gaumgæfilega og var mikið af mistökum í síðustu umferðinni fyrir landsleikjahlé.
Havertz hefði átt að fá víti samkvæmt reglum
TENGT EFNI

Havertz hefði átt að fá víti samkvæmt reglum

Sjálfstæð nefnd hefur verið skipuð af ensku úrvalsdeildinni og er hennar hlutverk að fara yfir helstu vafaatriði í dómgæslu hverrar umferðar.

Í síðustu umferð voru talin sex stór mistök, sem jafnar met frá því að nefndin hóf störf fyrir rúmum fjórum árum síðan. Meira en þrjú ár eru liðin síðan voru síðast gerð sex stór dómaramistök í sömu umferðinni.

Í síðustu umferð áttu Arsenal og Coventry að fá dæmdar vítaspyrnur sem þau fengu ekki og þá fékk Crystal Palace dæmda vítaspyrnu sér í hag í tapi gegn Liverpool sem átti ekki rétt á sér.

Ipswich átti ekki að fá vítaspyrnu gegn Bournemouth og í sama leik átti James Tavernier að fá seinna gula spjaldið sitt fyrir að tefja, sem var ekki gefið. Að lokum átti mark Thierno Barry fyrir Everton gegn Coventry að standa.

Það voru því tvö stór mistök í viðureignum Ipswich gegn Bournemouth og Everton gegn Coventry. Simon Hooper var á flautunni í Ipswich á meðan Stuart Attwell dæmdi leikinn í Liverpool.
Jöfnuðu met í dómaramistökum í síðustu umferð
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.