Karl Friðleifur Gunnarsson er bakvörður sem var á mánudag lánaður úr Breiðablik í Gróttu. Karl lék sína fyrstu keppnisleiki sumarið 2018 og á síðustu leiktíð kom hann við sögu í tveimur leikjum.
Karl var hluti af U19 ára landsliðinu sem komst áfram úr milliriðli sínum í Belgíu í nóvember. Hann hefur alls leikið 27 yngri landsliðsleiki og skorað í þeim sjö mörk. Í dag sýnir Karl á sér hina hliðina.
Karl var hluti af U19 ára landsliðinu sem komst áfram úr milliriðli sínum í Belgíu í nóvember. Hann hefur alls leikið 27 yngri landsliðsleiki og skorað í þeim sjö mörk. Í dag sýnir Karl á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Karl Friðleifur Gunnarsson
Gælunafn: Kalli, Charlie, Carlos
Aldur: 18 ára gamall
Hjúskaparstaða: í sambandi
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 16 ára gamall vs Fylkir árið 2018 í Pepsi
Uppáhalds drykkur: nýi límonaði Nocco efstur á listanum þessa dagana
Uppáhalds matsölustaður: Ginger klikkar ekki
Hvernig bíl áttu: Golf GTE
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: The Last Dance er í miklu uppáhaldi
Uppáhalds tónlistarmaður: Lil baby kominn ofarlega á listann eftir seinustu plötu en Drake og Travis Scott eru uppáhalds.
Fyndnasti Íslendingurinn: Auddi, Sveppi og Pétur Jóhann deila þessu saman
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: bláber, daim og oreo
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: kíkja á tölvupóst vegna lokaprófs
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: gæti ekki séð fyrir mér að spila með HK
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Daishawn Redan í leik á móti Hollandi. Hann fór illa með okkur í Milliriðlinum í U17
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: erfitt að gera upp á milli þjálarana sem hafa þjálfað mig en Júlíus Á Júlíusson og Úlfar Hinriksson hjálpuðu mér mikið í gegnum yngri flokkana.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt:
Sætasti sigurinn: úrslitaleikurinn í bikarúrslitum með 2. flokki á móti ÍA í fyrra.
Mestu vonbrigðin: allar þessar silfur medalíur í yngri flokkum
Uppáhalds lið í enska: Arsenal
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Jóhann Árni Gunnarsson, fáir með jafn góða sendingargetu og hann.
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Andri Fannar Baldursson
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Viktor Karl er myndarmenni
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Andrea Kristín Lárusdóttir, hún er samt búin að leggja skóna á hilluna hjá Þrótti.
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Cristiano Ronaldo
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: flestir á föstu þannig held ég verði að segja Bjarni Þór Hafstein
Uppáhalds staður á Íslandi: heima og Kópavogsvöllur
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: þetta var í leik með U-17 á móti Rússlandi. Ísak Snær fór í góða tæklingu og allir rússarnir hópuðust saman að dómaranum og Ísaki. Hann blótaði þeim eitthvað á rússnensku og þaggaði niður í öllu liðinu.
Ísak æfir blótsyrði fyrir landsleiki - „Vil geta svarað fyrir mig"
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: taka magnesium töflurnar mínar og dúndra mér síðan á koddann.
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: fylgist smá með körfuboltanum.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Mercurial
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: náttúrufræði hefur alltaf verið brekka fyrir mig
Vandræðalegasta augnablik: nýliðavígslan hjá Breiðablik var það óþægilegasta og vandræðalegasta sem ég hef gert.
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Jökull Andrésson, Valgeir Lunddal og Hákon Valdimarsson uppá stemninguna. Held að við myndum alveg spjara okkur en myndum hinsvegar aldrei komast heim.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: kann ekki að ulla með tungunni, það er bara ekki séns fyrir mig.
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Elfar Freyr Helgasson er einn mjúkasti gæi sem ég hef kynnst utan vallar.
Hverju laugstu síðast: ég lýg aldrei.
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: upphitun er ekki það skemmtilegasta en það nauðsynlegasta.
Nú er tími Covid-19 hvernig er “venjulegur” dagur: vakna snemma og fer á morgunæfingu. Eftir hana fer ég í rafræna tíma í skólanum. Síðan seinni partinn tek ég styrktaræfingar og fer svo í pottinn eða geri eitthvað skemmtilegt.
Athugasemdir