Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
   fös 27. mars 2026 11:40
Elvar Geir Magnússon
Toronto
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Eimskip
Arnór á æfingu í Toronto.
Arnór á æfingu í Toronto.
Mynd: KSÍ
Arnór hefur ekki leikið fyrir landsliðið síðan 2024.
Arnór hefur ekki leikið fyrir landsliðið síðan 2024.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Það er gleðiefni að Arnór Sigurðsson sé mættur aftur í landsliðshópinn en hann hefur ekki spilað í íslenska búningnum síðan í september 2024.

Þessi 26 ára Skagamaður hefur átt erfitt uppdráttar vegna erfiðra meiðsla en sér fram á bjartari tíma og er þakklátur fyrir að vera í hópnum sem býr sig undir vináttulandsleiki gegn Kanada og Haítí sem báðir verða spilaðir í Toronto.

Arnór spjallaði við Fótbolta.net á liðshóteli Íslands í Kanada og var fyrst spurður út í hvernig það væri að vera mættur aftur í landsliðsverkefni?

„Þetta gefur manni helling. Maður veit ekki hvað maður hefur fyrr en maður hefur misst það einhvern veginn. Þetta hefur verið langur tími, meiðsli í eitt og hálft ár. Það er geggjað að vera komin aftur í bláu treyjuna og bara þakklæti," segir Arnór sem hefur leikið 34 landsleiki.

Mjög erfitt andlega
Hann segir það hafa verið erfitt að hafa þurft að fylgjast með landsliðinu í verkefnum síðasta árs án þess að geta tekið þátt.

„Líka því það eru spennandi hlutir í gangi. Það er kominn nýr þjálfari og við erum að spila skemmtilegan bolta. Ungu leikmennirnir eru orðnir reynslumeiri og bara betri. Það var erfitt að geta ekki tekið þátt á síðasta ári."

Hvernig hefur þetta ferli verið að ganga í gegnum þessi meiðsli?

„Mjög erfitt, líka andlega að geta ekki æft né spilað fótbolta. Líka yfir svona langan tíma þar sem ég komst ekki á neitt skrið. Lengsta sem ég náði voru einhverjar þrjár vikur án þess að meiðast aftur," segir Arnór sem horfir nú fram veginn og segir að skrokkurinn sé orðinn góður.

Skrokkurinn miklu betri
„Eftir jól hefur verið allt annar bragur og skrokkurinn miklu betri. Ég hef fundið taktinn og náð að stjórna þessu, keyra ekki á eitthvað sem er ekki alveg klárt. Það er þakklæti til sjúkrateymisins í Malmö. Þegar maður hefur verið svona lengi frá þá lærir maður að meta alla litlu hlutina. Að geta verið á æfingum en ekki í líkamsræktarsalnum. Maður tekur dag fyrir dag."

Arnór spilar fyrir sænska stórliðið Malmö og sænska deildin er handan við hornið. Hann hefur verið að spila í sænska bikarnum með liðinu í vor.

„Þetta er spennandi. Vonbrigði með bikarinn sem var kannski okkar leið í Evrópu eftir skrítið ár í fyrra. Það er hugur í liðinu og krafa gerð á að við tökum titilinn ár eftir ár. Í fyrra var milliár og vonandi komum við til baka og gerum betur," segir Arnór en Malmö hafnaði í sjötta sæti á síðasta tímabili.

Lúxusvandamál fyrir þjálfarana og okkur
Ísland mætir Kanada klukkan 17 að íslenskum tíma á morgun og svo gegn Haíti á þriðjudag klukkan 16:30. Hvað viljum við fá út úr þessum glugga?

„Byggja ofan á það sem við höfum verið að byggja, nýta þá rétt. Við horfum ekki á þetta sem landsleiki sem skipta engu máli. Við vitum að við erum á leið í Þjóðadeildina sem getur gefið okkur helling. Við þurfum að nota þessa leiki og taka sem flest skref fram á við," segir Arnór.

Íslandi skortir ekki breiddina þegar kemur að hæfileikaríkum sóknarleikmönnum um þessar mundir. Það sést vel á því úrvali sem Arnar Gunnlaugsson hefur úr að velja fyrir þessa leiki og svo í 6-2 sigrinum hjá U21 landsliðinu gegn Eistlandi í gær.

„Þetta er lúxusvandamál, fyrir þjálfarana og okkur. Þeir sem eru að spila í þessum stöðum eru í samkeppni og samkeppni er góð fyrir alla. Við erum með geggjaða leikmenn sem eru að spila á háu 'leveli' og flott starfslið í kringum þetta svo það eru algjörlega spennandi tímar," segir Arnór að lokum.
Slapp
banner
banner