Fotbolti.net
28.03.26 - 18:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gleymist að hann er aðeins 21 árs - „Miklu yngri en maður hélt"

Gleymist að hann er aðeins 21 árs - „Miklu yngri en maður hélt"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Ísland er að vinna Kanada 2-0 í hálfleik í æfingaleik í Toronto í Kanada. Orri Steinn Óskarsson hefur verið fjarverandi vegna meiðsla í undanförnum landsliðsverkefnum en hann skoraði bæði mörkin.

Orri Steinn er 21 árs gamall en hann er að spila sinn 17. landsleik og er kominn með níu mörk.

Sjáðu mörkin: Orri óstöðvandi að eyðileggja partíið hjá Kanada
TENGT EFNI

Sjáðu mörkin: Orri óstöðvandi að eyðileggja partíið hjá Kanada

Lestu um leikinn: Kanada 2 - 2 Ísland
Kári Árnason, sérfræðingur á Sýn Sport, telur að Orri geti bætt markamet Gylfa Þórs Sigurðssonar sem hefur skorað 27 mörk fyrir landsliðið.

„Hann er 21 árs, það gleymist, hann er miklu yngri en maður hélt. Hann er ótrúlegur fyrir landsliðið. Þetta markamet, ekki nema Gylfi spili til 45 ára aldurs, er í bullandi hættu," sagði Kári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.