Heimild: TSN
Kanadíska landsliðið býr sig undir HM með því að leika vináttulandsleiki gegn Íslandi og Túnis. Leikurinn gegn Íslandi verður í dag klukkan 17:00 að íslenskum tíma.
Hann verður spilaður í Toronto, á leikvangi sem notaður verður á HM í sumar.
Hann verður spilaður í Toronto, á leikvangi sem notaður verður á HM í sumar.
Lestu um leikinn: Kanada 2 - 2 Ísland
„Við vitum að við erum komnir á mótið en við lítum ekki á þessa leiki sem vináttuleiki. Þetta er undirbúningur fyrir HM. Við vitum að ef við tökum þessum leikjum ekki alvarlega þá mætum við ekki undirbúnir í stærstu keppni lífs okkar," segir Ismael Kone, landsliðsmaður Kanada sem spilar fyrir Sassuolo á Ítalíu.
„Við erum meðvitaðir um þetta svo við förum í alla leiki til að framkvæma allt sem við höfum lært, koma inn með réttu hugarfari og baráttuanda."
Leikmenn Kanada er í samkeppni um að vera með á HM í sumar og ljóst að þeir munu ekkert gefa eftir í dag. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari gerir sér grein fyrir því.
„Það gefur þessa extra krydd að vera að fara að mæta liði sem er á leið á HM. Ef ég væri leikmaður Kanada myndi ég vilja tryggja mér farseðilinn með góðri frammistöðu. Ég held að það verði ekki venjulegur vináttulandsleikjafílingur og vonandi verður þetta góð skemmtun," sagði Arnar við Fótbolta.net.



