,,Bjóst ekki við þessum stormsveip"
Víkingar heimsækja á morgun Ísafjörð og mæta þar Vestra í níundu umferð Bestu deildarinnar. Þar mætast liðin í efstu tveimur sætum deildarinnar.
Víkingar fljúga á Ísafjörð í fyrramálið og verða svo klárir í slaginn þegar leikurinn hefst klukkan 14:00 á Kerecis vellinum.
Víkingar fljúga á Ísafjörð í fyrramálið og verða svo klárir í slaginn þegar leikurinn hefst klukkan 14:00 á Kerecis vellinum.
Toppbaráttuslagur á fallegum stað
„Við fljúgum í fyrramálið, fáum okkur að borða og höfum smá tíma í rölt fyrir leik. Svo er bara 'game on'," segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, við Fótbolta.net í dag.
„Þetta er toppbaráttuslagur, Vestramenn búnir að vera mjög flottir og verðugur andstæðingur. Við erum mjög spenntir að mæta þeim og búumst við hörku leik. Þeir eru búnir að vera sérstaklega massífir varnarlega, erfiður múr að brjóta. Davíð Smári er búinn að 'drilla' þá hrikalega vel varnarlega, það er stemning í félaginu, bænum og liðinu. Grunngildin eru góð, allir að berjast fyrir hverjum einasta bolta. Þetta verður hörku leikur, erfiður leikur fyrir okkur. Við hlökkum bara til að mæta þeim og koma á Ísafjörð, fallegur staður."
Sýnir hversu langt er hægt að fara á grunngildunum
Ég ætla giska á að þú sért einn af langflestum sem sáu ekki Vestra fyrir sér við toppinn eftir átta leiki. Hafa þeir komið þér á óvart?
„Auðvitað bjuggust ekki margir við því að þeir væru við toppinn. En það bara sýnir sig hvað maður kemst langt á grunnatriðunum í fótbolta, ef þau eru til staðar þá nær maður ansi langt bara á því einu. Davíð hefur gert rosalega vel með þetta lið þegar kemur að því og svo núna eru þeir búnir að þróa sinn leik. Þeir eru með blússandi sjálfstraust, byrjaðir að pressa lið og byrjaðir að spila boltanum. Þeir eru bara að grípa gæsina akkúrat núna og gera það gríðarlega vel."
„En nei, maður bjóst ekki við þessu."
Einmitt það sem Víkingar voru að vonast eftir
Einn allra besti leikmaður deildarinnar í upphafi móts hefur verið Daði Berg Jónsson sem er lánsmaður frá Víkingi. Hvernig hefur verið að fylgjast með honum?
„Bara æðislegt. Það er búið að vera gaman að fylgjast með Vestra og maður á smá part í Vestra liðinu með Daða að spila þarna. Það er búið að vera hrikalega gaman að sjá hann blómstra. Þetta var einmitt það sem maður var að vonast eftir, að hann fengi stærra hlutverk, fleiri leiki og fleiri mínútur og nyti góðs af því. Hann hefur svo sannarlega gert það og gripið tækifærið, sýnt hversu megnugur hann er. Við sáum þessa hæfileika í honum, en engu að síður þá kannski bjóst maður ekki við akkúrat þessum stormsveip sem hann hefur komið með inn í þetta. Við vitum alveg hversu góður Daði er, en hann hefur gert hrikalega vel og vaxið sem leikmaður. Leikmenn á þessum aldri taka þessi stökk, þeir þurfa traust og þurfa mínútur leik eftir leik í fullorðinsfótbolta til að öðlast sjálfstraust. Þá geta menn tekið rosalega stór stökk eins og Daði er að sýna akkúrat núna."
Gaman að sjá Daða blómstra
Þegar tímabilið var nýbyrjað, Aron Elís meiddist illa, kom hugsunin upp að þið hefðuð ekki átt að lána Daða?
„Jájá, það var alveg þannig þegar Aron Elís meiðist og við nýbúnir að senda Daða á lán. Ég efast um að við hefðum lánað hann ef álíka staða hefði komið upp á meðan hann var enn hjá okkur. En engu að síður þá hefur Daði gott af þessu, þróar sinn leik hjá Vestramönnum, verður að manni þar. Það er gott að fara í smá útlegð upp á Ísafjörð og búa einn. Hann er bara með hugann við fótboltann, ekkert sem truflar hann. Hann getur lært inn á sjálfan sig. Þessi hugsun kom alveg upp, en ég er ekkert að hugsa í dag að við hefðum ekki átt að lána hann. Svona fór þetta og við erum sáttir með þetta, mjög sáttir hvernig gengur hjá honum og höldum áfram að fylgjast með honum og hvetja hann áfram. Það er mjög gaman að sjá hann blómstra þarna."
Svo margt sem getur gerst í millitíðinni
Það er kannski ótímabært að velta því fyrir sér núna, en hafið þið tekið samtalið hvort þið mögulega kallið hann til baka þegar glugginn opnar í júlí?
„Nei, eins og þú segir er það eitthvað sem við munum kíkja á þegar nær dregur, þurfum að sjá hvernig staðan er á okkur og staðan á honum. Það er algjörlega tilgangslaust að spá í því akkúrat núna, svo margt sem getur gerst í millitíðinni. Fyrst og fremst erum við ánægðir að sjá þróunina á honum, spilatímann sem hann fær. Þetta er gott fyrir báða aðila, og þá sérstaklega fyrir Daða."
„Þetta er það sem við vorum að vonast eftir, hefðum alveg getað haldið honum og hann reynt að vinna sig inn í liðið hjá okkur, en við töldum að þetta væri best fyrir hann að fá að fara. Við hefðum getað verið sjálfselskir, hugsað bara um okkur og látið hann vera hér svo við værum með enn breiðari hóp, en við vildum gera það besta fyrir hann, hleypa honum á vit ævintýranna og fá að þroskast sem leikmaður."
Væri óþægileg staða fyrir leikmanninn
Býstu við mikið breyttu Vestraliði þar sem það verður enginn Daði Berg á morgun?
„Eins og hefur sýnt sig þá hefur Daði verið þeirra besti leikmaður á þessu tímabili og hefur svolítið borið upp sóknarleikinn þeirra. Það verður alveg smá högg að missa hann, en samt sem áður er Davíð búinn að ná svo mikilli stemningu upp að ég held að það komi bara maður í manns stað og þeir muni halda áfram að sýna hjarta, hungur og baráttuvilja eins og þeir gera með Daða í liðinu. Það breytist ekkert og við verðum viðbúnir því að mæta þeim af sama krafti."
„Það er aldrei gott fyrir neinn leikmann að þurfa að spila á móti sínu liði, þannig það eina rétta í stöðunni er að hann spili ekki þennan leik. Við erum samt ekkert að spá í því, sama hvort Daði detti út eða ekki, þá býst ég við hörkuleik."
„Ég hef sjálfur ekki lent í því að spila á móti liði sem ég er samningsbundinn, en ég held það geti verið óþægileg staða fyrir leikmanninn. Hver veit nema hann komi til baka um mitt tímabil og er kannski búinn að setja okkur í slæma stöðu með sigurmarki gegn okkur. Ég held að það sé ekki gott fyrir neinn," segir Sölvi.
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 9 | 6 | 2 | 1 | 18 - 8 | +10 | 20 |
2. Vestri | 9 | 5 | 1 | 3 | 11 - 5 | +6 | 16 |
3. Breiðablik | 9 | 5 | 1 | 3 | 14 - 15 | -1 | 16 |
4. Valur | 9 | 4 | 3 | 2 | 20 - 12 | +8 | 15 |
5. Stjarnan | 9 | 4 | 1 | 4 | 16 - 17 | -1 | 13 |
6. Fram | 9 | 4 | 0 | 5 | 15 - 15 | 0 | 12 |
7. ÍBV | 9 | 3 | 2 | 4 | 9 - 15 | -6 | 11 |
8. KA | 9 | 3 | 2 | 4 | 9 - 16 | -7 | 11 |
9. KR | 9 | 2 | 4 | 3 | 26 - 22 | +4 | 10 |
10. FH | 9 | 3 | 1 | 5 | 15 - 14 | +1 | 10 |
11. Afturelding | 9 | 3 | 1 | 5 | 8 - 13 | -5 | 10 |
12. ÍA | 9 | 3 | 0 | 6 | 12 - 21 | -9 | 9 |
Athugasemdir