28.10.26 - 12:04
Kári Snorrason
Siggi Höskulds: Alltaf dreymt um að þjálfa Blika
Stuðullinn á Arnari fer lækkandi

Uppalinn Bliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stuðullinn á Arnari Grétarssyni fer lækkandi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökull er jafnframt orðaður við starfið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppalinn Bliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik er í þjálfaraleit eftir að félagið tilkynnti um að það hafi sagt skilið við Ólaf Inga Skúlason í gærmorgun.
Fjöldi þjálfara hafa verið orðaðir við starfið, þar á meðal Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs. Valur Gunnarsson, sérfræðingur Innkastsins á Fótbolta.net, birti meðal annars færslu á X-síðu sinni þar sem hann skrifaði að honum þætti galið ef Blikar myndu ekki heyra í Sigurði.

TENGT EFNI
Arnar Grétars talinn líklegastur til að taka við Blikum
Vísir ræddi við Sigga Höskulds sem sagði að Breiðablik hafi ekki haft samband við sig en hann sagði þó að draumurinn væri að þjálfa Breiðablik einn daginn.
„Ég er náttúrulega uppalinn Bliki og mig hefur alltaf dreymt um að þjálfa Blika. En ég held að það sé enginn áhugi af þeirra hálfu um það. Þess utan er ég bara mjög ánægður þar sem ég er hjá Þór og spenntur fyrir því að komast aftur af stað fyrir næsta tímabil,“ sagði Sigurður í samtali við Vísi.
Þórsarar héldu sér uppi í Bestu deildinni með sigri á FH um síðustu helgi í lokaumferð deildarinnar. Sigurður hefur stýrt liðinu síðustu þrjú tímabil en þar áður var hann aðstoðarþjálfari Vals og aðalþjálfari Leiknis.
Arnar talinn líklegastur
Veðbankinn Epicbet telur líklegast að Arnar Grétarsson taki við starfinu en stuðullinn á honum hefur lækkað úr 4.00 í gær og er nú í 3.00.
Næstur þar á eftir er Jökull Elísabetarson með 4.50 í stuðul og er hann óbreyttur frá gærdeginum.
Sigurður hefur hækkað um 4.5 í stuðul frá því í gær, úr 7.50 yfir í 12.00.

Mér finnst galið ef Blikar tékka ekki á stöðunni á Sigga Höskulds þegar þeir ráða næsta þjálfara. Gæinn er búinn að halda Leikni og Þór í Efstu deild. Væri hrikalega gaman að sjá hann með jafn stórt lið og Breiðablik er. Svo er hann uppalinn Bliki. #fotboltinet
— Valur Gunnarsson (@valurgunn) October 27, 2026