Fotbolti.net
Premier League
Liverpool
Liverpool
0 - 0
Arsenal
Arsenal
Fyrir leik
Liverpool gæti fengið Araujo á afslætti
Fyrir leik
Þetta er enska úrvalsdeildin, ekki Disneyland
Fyrir leik
Iraola ræddi um stöðuna á leikmannahópnum
Fyrir leik
D-deildarliðið kastaði Arsenal úr keppni

Ein óvæntustu úrslit í sögu enska deildabikarsins urðu í liðinni viku þegar D-deildarliðið Fleetwood Town sló út Englandsmeistara Arsenal á heimavelli sínum, sem heitir Highbury. Lokatölur urðu 1-1 og því var gripið til vítaspyrnukeppni. Þar skoruðu bæði lið úr fyrstu þremur spyrnunum en Bruno Guimaraes brenndi fjórðu spyrnu Arsenal af. Fleetwood nýtti allar sínar spyrnur og vann vítakeppnina því 5-3. Ótrúleg úrslit.

Fyrir leik
Liverpool áfram eftir æsispennandi vítakeppni

Liverpool komst í 8-liða úrslit deildabikarsins á miðvikudag með því að sigra Chelsea í vítakeppni. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma þar sem bæði mörkin komu einmitt af vítapunktinum. Vítakeppnin var síðan æsispennandi og úrslit réðust í bráðabana.

Fyrir leik
Getur Liverpool orðið Englandsmeistari?

Liverpool hefur verið á flottu róli að undanförnu og er að koma betri mynd á liðið undir stjórn Andoni Iraola. Iraola tók við Liverpool í sumar og er liðið þessa stundina í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 15 stig eftir átta leiki. Spurt var að því í síðasta þætti af Enski boltinn hlaðvarpinu hvort að Liverpool gæti orðið Englandsmeistari.

„Ekki verður Manchester City það," sagði Haraldur Örn Haraldsson en City hefur verið fundið sekt í stóru dómsmáli og á von á mikilli refsingu ef áfrýjun félagsins gengur ekki upp. „Ef Arsenal er með einhvern keppinaut, þá myndi maður líkast til segja Liverpool í dag."

„Það eina sem maður hefur áhyggjur af er að þeir eru strax sex stigum á eftir Arsenal," sagði Brynjar Jökull Guðmundsson. „Það er óþægilegt bil svona snemma," sagði Haraldur Örn.

Liverpool
EPA
Fyrir leik
Áfrýjun Arsenal hafnað - Dowman í þriggja leikja bann

Max Dowman, leikmaður Arsenal, mun missa af næstu þremur leikjum eftir að áfrýjun félagsins gegn brottvísun hans í tapinu gegn Fleetwood í deildabikarnum á þriðjudag var hafnað.

Max Dowman
EPA
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.