30.10.26 - 15:54
Elvar Geir Magnússon
Arteta: Við erum ekki í Disneylandi

Max Dowman.

Mynd: EPA

Mikel Arteta.

Mynd: EPA

Max Dowman.

Mynd: EPA
Ein óvæntustu úrslit í sögu enska deildabikarsins urðu í vikunni þegar D-deildarliðið Fleetwood Town sló út Englandsmeistara Arsenal eftir vítakeppni.
Hinn 16 ára Max Dowman fékk að líta beint rautt spjald á 85. mínútu þegar hann sparkaði í liggjandi leikmann Fleetwood í pirringskasti eftir groddaralega tæklingu og kláruðu Englandsmeistararnir leikinn einum manni færri.
Þegar Dowman gekk í átt að búningsherbergjunum fékk hann orð í eyra frá Mikel Arteta, stjóra Arsenal, sem var auðsjáanlega illur út í táninginn

TENGT EFNI
Gagnrýnir viðbrögð Arteta eftir rauða spjald táningsins
Dowman fer í þriggja leikja bann en Arteta var gagnrýndur fyrir hörð viðbrögð við leikmanninn unga. Stjórinn var spurður út í þá gagnrýni á fréttamannafundi í dag.
Verður að skilja hvernig okkar samband er
„Þú verður að skilja samhengið, hvernig samband mitt er við hann og hvað við ræddum áður en leikurinn hófst. Ef þú hefðir séð viðbrögð foreldra minna við því sem ég gerði hefði þér örugglega ekki líkað við þau. En fyrir mig voru þetta bestu viðbrögðin sem hugsast gátu því þau mótuðu mig," segir Arteta.
„Liðsfélagar hans þurftu að spila tíu inni á vellinum. Við hverju býst fólk? Hann er að spila á þessu getustigi og svona eru viðbrögðin. Þegar ég vinn ekki þá verð ég helvíti pirraður. Svona er umhverfið og raunveruleikinn. Við erum í ensku úrvalsdeildinni en ekki Disneylandi. Við hlúum svo vel að honum en við gerum líka kröfur og hann þarf að vinna fyrir því að fá að spila."
Allt í góðu milli okkar
„Viðbrögð mín komu í hita augnabliksins og í gremju, því ég veit hverjar afleiðingarnar yrðu. Þetta er eitthvað sem við ræddum rétt áður en við fórum út á völl, enda er þetta ekki í fyrsta sinn sem svona gerist; það kom líka upp fyrr í mánuðinum þegar hann spilaði með enska unglingalandsliðinu," segir Arteta.
„Hann mun áfram lenda í svona aðstæðum, miðað við hvernig hann spilar og hvernig hann dregur andstæðingana að sér. Við þurfum að vernda hann, enda er hann aðeins 16 ára, en jafnframt vera hreinskilnir við hann um það sem ætlast er til af honum gagnvart liðinu og félaginu. Ég átti samtal við hann í gær. Það eru engin vandamál. Ég hef sjálfur lent í þessu. Þess vegna er mér svo annt um að vernda strákinn og unga leikmenn; við höfum jú öll gert svona mistök."

"We are not in Disneyland!"
— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) October 30, 2026
Mikel Arteta speaking about the way people reacted to his reaction to Max Dowman's red card against Fleetwood Town ???? https://t.co/tpvC73DxWP

Mikel Arteta.

Mynd: EPA