Fotbolti.net
29.10.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Af hverju er bara einn leikur í enska á sunnudaginn?

Ofursunnudagur?

Ofursunnudagur?

Canon

Mynd: EPA

Það verður aðeins einn leikur á sunnudaginn í ensku úrvalsdeildinni. Það er þó stórleikur, gómsæt viðureign Arsenal og Liverpool.

Það er afar sjaldgæft á leikjahelgum deildarinnar að það sé aðeins einn leikur á sunnudegi en að þessu sinni atvikast það þannig. En af hverju?
Þann 17. ágúst var niðurröðunin opinberuð en þá höfðu sjónvarpsrétthafar valið leiki. Aðeins tveir leikir áttu að vera sunnudaginn 1. nóvember; auk Arsenal - Liverpool var það Aston Villa - Fulham sem var settur á dagskrá fyrr um daginn.

Tólf dögum seinna var niðurröðun leikja í Meistaradeildinni staðfest og Aston Villa mun mæta Barcelona þriðjudaginn 3. nóvember.

Enska úrvalsdeildin reynir að koma í veg fyrir að lið spili tvo leiki innan 60 klukkustundna ramma. Þetta þýðir að lið sem spila Evrópuleiki á fimmtudögum (Brighton, Bournemouth og Crystal Palace í síðustu viku) eiga að fá leiki sem eru áætlaðir fyrir föstudag eða laugardag færða til sunnudags eða mánudags.

Hefði leikur Aston Villa gegn Barcelona verið settur á miðvikudaginn hefði deildarleikur Villa gegn Fulham ekki verið færður.

laugardagur 31. október
12:30 Chelsea - Man Utd
15:00 Bournemouth - Leeds
15:00 Brentford - Nott. Forest
15:00 Coventry - Sunderland
15:00 Hull City - Ipswich Town
15:00 Man City - Brighton
17:30 Tottenham - Crystal Palace
20:00 Aston Villa - Fulham

sunnudagur 1. nóvember
16:30 Liverpool - Arsenal

mánudagur 2. nóvember
20:00 Newcastle - Everton
Af hverju er bara einn leikur í enska á sunnudaginn?
Canon

Mynd: Chateau

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.