Franska félagið Nantes kynnti í dag nýjan leikmann en Marcus Coco er kominn frá Guingamp. Skiptin þykja ekkert sérstaklega áhugaverð en tónarnir sem eru undir í kynningunni hafa vakið mikla athygli.
Nantes virðist vera með gott teymi þegar það kemur að samfélagsmiðlum því félagið kynnir oft leikmenn á frumlegan hátt.
Lucas Evangelista var kynntur í gegnum Fortnite-leikinn á síðasta ári og núna var Marcus Coco kynntur með skemmtilegu lagi.
Lagið sem fékk að vera undir er lagið CoCo með O.T. Genasis sem varð afar vinsælt um allan heim fyrir rúmlega fjórum árum síðan.
Nantes ákvað þess vegna að bregða á leik en í laginu segir Genasis auðvitað „I'm in love with the CoCo."
📝 DEAL DONE: FC Nantes have unveiled new signing Marcus Coco after his £3m move from Guingamp. 😂 (Source: @FCNantes) pic.twitter.com/b7brCh3WWj
— Transfer News Live (@DeadlineDayLive) July 16, 2019
Athugasemdir