Jesus gæti farið frá Arsenal - Möguleg stjóraskipti hjá Man Utd og Bayern - Dortmund vill halda Sancho
   fös 26. apríl 2024 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Nýtt stuðningsmannalag hjá Hvöt
Mynd: Hvöt
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið ‚Áfram Hvöt‘. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson og flytjandi er Baldur Einarsson. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.

Smelltu hér til að hlusta á Spotify

„Það er mikill heiður að hafa fengið að spreyta sig á þessu verðuga verkefni. Mér þykir að sjálfsögðu afar vænt um Ungmennafélagið Hvöt, enda æfði ég og lék knattspyrnu með félaginu upp alla yngri flokka," sagði Einar Örn.

„Ég náði meira að segja að standa í markinu í tvo eða þrjá leiki í meistaraflokki sumarið 1995. Það var þá sem ég áttaði mig á því að tónlistin hentaði mér líklega betur. Það er virkilega gaman og gefandi að vinna tónlist með syni sínum. Við Baldur erum bæði spenntir og stressaðir að vita hvernig viðtökur þetta nýja lag fær. En við vonum auðvitað að það hljómi á Blönduósvelli í sumar og sem víðast þar sem Hvatarfólk er á ferð," hélt hann áfram

„Ungmennafélagið Hvöt hefur lengi vantað gott stuðningsmannalag en þónokkur ár eru síðan 'Ekki vera löt, allir í Hvöt' kom út. Þegar ég hafði samband við Einar Örn og Baldur síðsumars 2023 stóð ekki á svörum. Úr varð þessi frábæri hittari sem mun án efa fá góðar viðtökur hjá félagsmönnum Hvatar, íbúum Húnabyggðar og bara öllum öðrum. Áfram Hvöt!” sagði Grímur Rúnar Lárusson, formaður Ungmennafélagsins Hvatar
Áfram Hvöt!
Athugasemdir
banner
banner
banner