Fyrrum knattspyrnumaðurinn Adam Johnson, sem í fyrra var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlku undir lögaldri, var mættur fyrir rétt á ný í gær.
Eftir að áfrýjun hans í málinu var vísað frá í fyrra hefur hann unnið í því að fá mildari dóm og fékk hann að flytja mál sitt í réttarsal í gær.
Viðurkennir Johson að hafa kysst stelpuna en segir að sex ára fangelsisdómur sé full hörð refsing fyrir brotið.
Búast má við því að niðurstaða í málinu liggi ekki fyrir fyrr en í fyrsta lagi eftir tvær vikur.
Þá segja fréttir á Englandi að hann hafi eytt rúmlega einni miljón punda í lögfræðikostnað við það að reyna að milda dóminn.
Athugasemdir