Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 02. mars 2015 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Thierry Henry: Chelsea getur unnið þrennuna
Thierry Henry er bjartsýnn fyrir hönd Chelsea.
Thierry Henry er bjartsýnn fyrir hönd Chelsea.
Mynd: Getty Images
Thierry Henry, fyrrum leikmaður Arsenal og Barcelona, telur að Chelsea geti endað tímabilið með þrjá titla.

Chelsea varð enskur deildabikarmeistari í gær eftir 2-0 sigur gegn Tottenham og hefur Henry trú á því að liðið geti einnig unnið úrvalsdeildina og Meistaradeildina.

,,Ég held þeir geti unnið þrennuna. Þeir hafa öll gæðin sem þarf til þess," sagði Henry.

,,Tíminn mun leiða þetta í ljós, en leikurinn gegn PSG verður risastórt verkefni fyrir þá. Ég hlakka mikið til að sjá þann leik, ef þeir vinna PSG gætu þeir þurft að fara í gegnum Bayern Munchen og svo Real Madrid og Barcelona. Þetta kemur í ljós."
Athugasemdir
banner
banner