Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 02. september 2014 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
De Ceglie lánaður til Parma (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Paolo De Ceglie er kominn til Parma á lánssamning sem gildir út tímabilið.

De Ceglie er 27 ára gamall og á vel yfir 100 leiki að baki fyrir Juventus sem hefur verið á toppi ítalska boltans síðustu ár.

Varnarmaðurinn hefur aldrei spilað fyrir A-landslið Ítalíu þrátt fyrir góðan árangur Juventus en hann á 24 landsleiki að baki fyrir yngri landsliðin.

Hjá Parma verður De Ceglie partur af spennandi vörn sem skilaði liðinu sjötta sæti deildarinnar á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner