Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 02. september 2015 09:00
Alexander Freyr Tamimi
Ramos segir De Gea að halda haus
Sergio Ramos og David De Gea verða ekki liðsfélagar í bili.
Sergio Ramos og David De Gea verða ekki liðsfélagar í bili.
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, hvetur samlanda sinn David De Gea til að bera höfuð hátt þó að félagaskipti hans til spænska stórveldisins hafi ekki náð í gegn.

De Gea hefur enn ekki spilað leik fyrir Manchester United á tímabilinu og var við það að ganga í raðir Real Madrid á lokadegi félagaskiptagluggans. Hins vegar tókst ekki að klára pappírsvinnuna á réttum tíma og verður hann því um kyrrt á Old Trafford.

„Ég hef ekki rætt við De Gea, í hreinskilni sagt höfum við ekki talað saman, og ég veit ekki hvernig honum líður með þetta. En svona er lífið," sagði Ramos við blaðamenn.

„Stundum þurfum við bara að ganga í gegnum ákveðna hluti og höndla þá eins vel og hægt er. Það þurfa allir að taka ábyrgð á stöðunni og hann þarf að gera sitt besta þar sem hann er."

„Að ræða um fótboltamann sem er ekki leikmaður Real Madrid væri vanvirðing við liðsfélaga mína. Við erum með tvo frábæra markverði."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner