Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 03. ágúst 2015 06:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Aranguiz vill ekki fara til Leicester
Charles Aranguiz
Charles Aranguiz
Mynd: Getty Images
Charles Aranguiz segist ekki vilja fara til Leicester City heldur vilji hann frekar fara til Bayer Leverkusen.

Aranguiz er landsliðsmaður frá Síle en hann leikur með Internacional. Hann hefur mikið verið orðaður við lið í Evrópu og talið er að Leicester hafi boðið hærra en þýska liðið.

Leikmaðurinn segist hins vegar frekar vilja fara til Þýskalands og spila með Leverkusen sem eru í Meistaradeild Evrópu og segir hann að peningar séu ekki mikilvægir í ákvörðun hans.

„Forseti félagsins sagði mér að það væri boð frá Leicester og það væri gott fyrir félagið. En Leverkusen er merkilegra fyrir mér," sagði miðjumaðurinn.

„Ég er ekki að tala um peninga. Á milli Leverkusen og Leicester þá er Leverkusen betra, þeir eru stærra lið."

Athugasemdir
banner
banner