Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 04. febrúar 2016 08:30
Óðinn Svan Óðinsson
Mignolet: Þurfum að skapa meira
Mignolet
Mignolet
Mynd: Getty Images
Simon Mignolet markvörður Liverpool telur skort á hugmyndaflæði vera aðal ástæðu fyrir slöku gengi liðsins að undanförnu.

Liverpool sem aðeins hefur unnið einn af síðustu fimm leikjum í deildinni hefur átt í erfiðleikum með að skapa sér færi og skora mörk.

Liðið tapaði fyrir spútnik liði Leicester í síðasta leik þar sem Jamie Vardy náði að koma boltanum tvisvar sinnum framhjá Mignolet í markinu. Mignolet átti að öðru leyti ágætis leik í markinu.

Við náðum ekki að skapa okkur nægilega mörg færi og þegar þú spilar við lið eins og Leicester þarftu að skapa meira til að fá eitthvað útúr leiknum," sagði Mignolet.

Athugasemdir
banner
banner
banner