Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 04. febrúar 2016 18:00
Magnús Már Einarsson
Pochettino: Kane og Vardy eru jafn góðir og Aguero
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, segir að Harry Kane sé jafn góður og Sergio Aguero.

Vardy hefur skorað 18 mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili, Kane 15 og Aguero 13.

Aguero hefur verið talsvert frá keppni vegna meiðsla en Pochettino vill meina að Kane og Vardy séu orðnir jafn góðir og Argentínumaðurinn.

„Í dag sýna Vardy og Kane mikil gæði og sömu gæði og Aguero," sagði Pocettino.

„Þeir eru allir mismunandi og koma úr ólíkum aðstæðum en Vardy og Kane eru á sama stalli og Aguero í dag."
Athugasemdir
banner
banner
banner