Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   lau 04. maí 2024 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
De Zerbi vill halda Milner og Lallana
Mynd: Getty Images

Roberto De Zerbi stjóri Brighton vill að James MIlner og Adam Lallana verði áfram hjá félaginu á næstu leiktíð.

Milner er orðinn 38 ára og Lallana er 35 ára en samningar þeirra beggja renna út í sumar.


„Þeir eru báðir mikilvægir leikmenn. Eðlilega geta þeir ekki spilað hverja einustu mínútu nema maður noti þá rétt. Lallana hefur t.d. verið klár í nánast hvern einasta leik seinni hluta tímabilsins," sagði De Zerbi.

Aftur á móti hefur Milner verið fjarverandi vegna meiðsla síðan í janúar en hann er með ákvæði í samningnum um að hægt sé að framlengja samninginn um ár í viðbót.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner