Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 05. október 2013 10:00
Jónas Björgvin Sigurbergsson
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Allt er gott sem endar vel
Jónas Björgvin Sigurbergsson
Jónas Björgvin Sigurbergsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Næstu daga munu leikmenn liða í Pepsi-deildinni gera upp sumarið með því að koma með pistil hér á Fótbolta.net. Í dag er komið að Þór en Jónas Björgvin Sigurbergsson skrifaði pistilinn um sumarið hjá Akureyringum.



Tímabilið byrjaði hálf partinn með æfingaferðinni til Spánar, þar sem við höfðum harkað upp fyrir kostnaðinum með því að standa á Glerártorgi og öðrum stöðum að reyna selja happdrættismiða. Útlendingarnir reyndu hvað þeir gátu en þeir enduðu með með fleiri kellingum en miðum seldum svo það gekk eins og það gekk.

Við dvöldum á fínu hóteli á sama stað og FH. Vellirnir frábærir, góðar æfingar og allt tipp topp. Því miður fyrir suma fundum við casino hjá mollinu og sumir gerðu sér fleiri ferðir þangað heldur en aðrir. Daninn til dæmis rændi spilavítið eina nóttina í poker og kom á annað hundrað þúsund krónum ríkari. Meðan hann var að græða voru menn að slást yfir því hverjir borguðu bensínið.

Menn urðu reiðir en enginn varð þó reiðari en nýliðinn Hlymur Atli Magnússon, þannig er mál með vexti að það skelltu sér nokkrir í búðarferð og auðvitað var hann einn af þeim, tískulöggan sjálf. Meðan Hlymur reyndi að finna super slim fit buxur þá voru nefnilega nokkrir ennþá uppá hóteli og voru Andreus Stelmokas, Joshua Papa Wicks o.fl. að vinna hörðum höndum af því að hrekkja Hlyminn og bundu saman öll fötin hans um allt herbergið og þegar Hlymur kom og sá að 6 þúsund krónu sokkarnir hans voru teygðir og peysan var alltof stór þá stökk ekki bros á okkar manni heldur gekk hann á menn og sagði þeim að drullast til að borga nýtt dót. Það var opnað allan mini barinn hjá nokkrum kjúklingunum og fleira skemmtilegt svo við komum allir tvíefldir til baka úr þessari ferð og ætluðum okkur svo sannarlega að sigra heiminn.

Komum vel graðir inn í mótið, ekkert gat stöðvað okkur. Eða jú, bíddu. Við mættum Blikunum þar sem þeir kenndu okkur kennslufræði í fótbolta 101. Næst komu FH-ingarnir í heimsókn á gulasta völl landsins. Þeir sigruðu okkur í þeim leiknum ansi auðveldlega 3-0. Næstir voru það KR-ingarnir í Frostaskjólinu. Enginn bjóst við neinu, þeir unnu sannfærandi 3-0.

Jájá, höfðum fengið á okkur 10 mörk í fyrstu þremur leikjunum og skorað eitt þegar graðir Víkingar mættu í heimsókn. Þá í næst síðasta skipti sumarsins lokuðum við markinu og unnum 1-0. Svolítill meistarabragur á þessu. Gerðum okkur síðan ferð í Árbæinn til Fylkismanna og það gekk ekkert upp hjá þeim á þeim tímanum og við riðum á vaðið og skoruðum 4 og fengum 1 á okkur. Þrír punktar á okkur. Leit allt voða vel út.

Valsmenn koma og vinna 3-5. Ég var nú bara í rútu á leiðinni norður með 2.flk þá. Þannig ég get lítið sagt um þann leik. Strákarnir skitu samt klárlega og Páll Viðar ekki búinn að átta sig á leynivopninu sínu.

Jæja, strákar rífum okkur upp! Förum á þjóðarleikvanginn og vinnum Frammarana. Hólmbert fær hann inn fyrir og fékk að nota fleiri útlimi en aðrir leikmenn sem spila fótbolta og dúndrar honum í samskeytin, ekkert að því. Síðan skorar Lennon með hausnum, einmitt! Hólmbert ríður síðan bara á vaðið og lokar okkur og skorar fyrstu þrennu Íslandsmótsins. Hlymurinn með heimkomu á Laugardagsvöllinn, líklega dagur sem hann nennir ekki að muna.

Síðan fáum við Stjörnuna í heimsókn, 1-1 jafntefli. Mönnum var heitt í hamsi, kannski aðeins of heitt en vinur okkar úr Garðabænum Veigar Páll Gunnarsson ollar Manna og fær verðskuldað rautt spjald. Fer síðan í frægt viðtal þar sem ummælin dæma sig bara sjálf. Sveinn Elías fer með alla vöðvana sína og ætlar að ekki að leyfa Gadda Jó að komast upp með að hrauna yfir Manna sem var liggjandi með höfuðhögg en það atvik var pínu eins og þegar maður sér Chiahuahua hund rífa kjaft við Pitbull hund. Það atvik átti eftir að spila stórt í twitter deilunni frægu. Þar sem Þorkell Máni hraunar yfir Svein Elías og kallar hann ljótum nöfnum t.d KA mann. Það mál átti hins vegar farsælan endi þar sem Máni baðst innilegrar afsökunar enda Svedsaður góður drengur!

Förum á Nettóvöllinn vinnum síðan 3-1, djöfull leit þetta vel út þá. Förum upp á skaga þar sem við vinnum dramatískan sigur á ÍA, títt nefndur Hlymur með late night winner á skaganum. NAAAAT. Fær samt credit fyrir effortið að reyna stela markinu. Þar straujar Manni, Jóa Kalla heldur harkalega og stendur síðan upp og þá veitist Jói Kalli að honum. Ljótt að sjá. Manni japplaði á stjörnusnakki alla leiðina heim enda að taka þessar stjörnur útaf hvað eftir annað. Djöfull leit þetta vel út! Fleiri útisigrar en heimasigrar og við á flottum stað í deildinni.

Það kemur ekkert annað til greina en að fara hirða fl. Punkta á heimavelli og taka Eyjamennina. Koma strákar! Sá leikur verður lengi í minnum hafður. Þar sem að King Rajko gerir sig sekan um tvö slæm mistök, mistök eru til að læra af þeim og eins og hann kenndi mér þá á maður að vera sterkur í sigri en sterkari í ósigri. Íslensk fjölmiðla umfjöllun tók á sig nýja mynd og ný lágkúra var skrifuð í lort skrifum hjá ónefndum aðilum.

Eftir þann leik kom svo erfiðasta leikja program sem hefur verið sett saman í sögu KSÍ. Nýliðarnir þurfa að fá Blikana, FH-ingana og KR-ingana á einu bretti. Þeir töpuðust eins og í fyrri umferðinni.

Jæja strákar þetta er ekkert svo bjart lengur. Förum til Ólafsvíkur og sækjum punkta. Mark Tubæk ákvað að taka leikinn í sínar eigin hendur þar sem hann var ekki búinn að vera nóg í sviðsljósinu og byrjar á því að setja hann með hægri fæti upp í samskeytin á okkar marki, þá fer skrýtin atburðarrás í gang og Wicks flækist í markinu. Palli brýndi á að við ætluðum að fækka þessum einstaklingsmistökum fyrir leik. Ouch :) Sá leikur endaði reyndar 1-1 þar sem Tubæk gerði flott mark.

Næst Fylkir, það var byrjunin á jafnteflunum sem spiluðu stórt þegar í endan er talið.
Valsmenn flottir á velli. Ég drullu svangur á afmælisdaginn strax eftir leik ætla rjúka í einhverja veisluna á Hlíðarendanum góða en nei. Valsmennirnir buðu okkur ekki í mat eftir leik eins og öll önnur lið. Menn mis sáttir með það. Fínn punktur sem við hirtum þar hins vegar.

Fram, leiðinlegur leikur. Lortað veður, punktur í sekkinn. Stjarnan úti, menn voru reyndar efins að við kæmumst. Búið að aflýsa fluginu, síðan korteri seinna eigum við að fara á flugvöllinn ASAP því skjótt skipast veður í lofti. Gott og blessað. Fórum á flottum tvinotter. Tubækinn settist á milli mín og Evrópu-Sigga. Hélt hann væri að grínast fyrst með að vera flughræddur og ég og Siggi stríddum honum aðeins en okkur stóð ekki á sama þegar flugvélin fór að hoppa og Tubæk sýndi okkur inn í lófana það var eins og hann hefði verið að taka þær upp úr vatnsfötu. Andlitið hvítara en það sem hvítt er og það náði enginn contacti við hann það sem eftir var, enda keyrði strákurinn heim.

Keflavík heima, STRÁKAR cmon. Vinna í dag og kveðjum falldrauginn að mestu! Nat. Gekk ekki eftir, það sem stóð upp úr var sennilega þegar Maggi Matt klobbaði mig 2x í röð og ég er enn að reyna loka klofinu. Fáum tvö flott víti en eins og svo oft áður var þetta meira stöngin út en inn.

ÍA heima, segjum bless við falldrauginn. Líklegt að Toddi og Dean vilji koma til Akureyrar og ekki reyna allt sem í þeirra valdi stendur til að reyna fella okkur ekki með sér. Allt kom fyrir ekki, við unnum 1-0 meistarabragur á þessu aftur. Loksins búið að tryggja sæti í deildinni að ári.

Fórum í skemmtiferð til Eyja í síðustu umferð þar sem menn voru léttir, ljúfir og kátir, skemmst er frá því að segja að við flugum þremur punktum með okkur heim, þó það væri í raun ekki pláss í vélinni. Menn hrósuðu Chuck og Tubæk mikið eftir þennan leik, en í raun var ég, leynivopnið hans Palla loksins farinn að sýna sparihliðarnar og átti til dæmis assarann á Tubæk. Lokahóf og læti um kvöldið þar sem ég fékk loks viðurkenningu fyrir vel unnin störf, efnilegasti leikmaðurinn, takk fyrir sumarið.
Kv Jónas Björgvin Sigurbergsson aka Big NaZ

Sjá einnig:
Skítugur sokkur - Keflavík
Sjálfsmarkaregn - Fram
Eftirminnilegt sumar á enda - Víkingur Ó.
Falllegt tímabil - ÍA
Athugasemdir
banner
banner
banner