Stefnt er á að landslið Englands og Nígeríu mætist í vináttuleik í júní á næsta ári.
Mohammed Sanusi, framkvæmdastjóri nígeríska knattspyrnusambandsins, staðfesti þetta í dag.
Ekki er búið að ákveða nákvæman leikdag eða hvar leikurinn fer fram.
Mohammed Sanusi, framkvæmdastjóri nígeríska knattspyrnusambandsins, staðfesti þetta í dag.
Ekki er búið að ákveða nákvæman leikdag eða hvar leikurinn fer fram.
Nígería er með Íslandi í riðli í HM en liðin mætast í annarri umferð í riðlakeppninni þann 22. júní.
Nígería mætir Króatíu í fyrsta leik 16. júní en Englendingar spila við Túnis í fyrsta leik sínum tveimur dögum síðar.
Athugasemdir