Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. mars 2018 20:35
Ívan Guðjón Baldursson
Wenger: Mikilvægur sigur eftir martröðina
Mynd: Getty Images
Arsenal lagði AC Milan að velli á San Siro í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.

Arsene Wenger er gríðarlega ánægður með sigurinn eftir tvo tapleiki gegn Manchester City og einn gegn Brighton í síðustu viku.

„Þetta er augljóslega mikilvægur sigur eftir skelfilega viku sem hefur verið hrein martröð fyrir okkur," sagði Wenger.

„Við erum langt frá því að vera komnir áfram og þurfum að klára verkefnið heima.

„Ég er ánægður með frammistöðuna, við vörðumst vel og gerðum ekki óþarfa mistök."


Wenger segir það jákvæðasta við sigurinn vera viðbrögð leikmanna sem sýndu mikið sjálfstraust.

„Það er mjög erfitt að melta tap í bikarúrslitum. Við vorum kýldir niður og þurftum að bregðast við.

„Leikmenn sýndu sjálfstraust, metnað og gæði í sigri gegn sterku liði hér í kvöld."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner