Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   sun 10. september 2017 20:07
Elvar Geir Magnússon
Logi Ólafs: Féllum of aftarlega
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar fengu á sig mark í blálokin gegn Stjörnunni í kvöld og þurftu að sætta sig við jafntefli. Logi Ólafsson þjálfari gerir sér þó grein fyrir því að stigið gæti reynst dýrmætt þegar upp er staðið en Víkingar voru komnir ansi nálægt fallpakkanum.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  2 Stjarnan

„Við gátum búist við því að eitthvað myndi ganga á því við gerðum þau mistök að falla of aftarlega. Að öðru leyti var þetta hetjuleg barátta," segir Logi.

Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, vildi meina að brotið hafi verið á sér þegar Víkingar komust í 2-1. Logi sá ekki hvað gekk á þar.

„Ég sá bara þegar hann missti boltann... hvort að eitthvað hafi gerst veit ég ekki."

Um stigið sem Víkingur fær:

„Það þarf ekki töluglöggann mann til að sjá að ekki þarf mikið að gerast. Það eru fjórir leikir eftir og ef liðin fyrir neðan fara að vinna leiki meðan við gerum það ekki þá sogumst við ofan í þetta. Þegar öllu er á botninn hvolft gæti þetta stig reynst okkur dýrmætt."

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner