Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 10. desember 2017 13:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Yfirburðir Roma skiluðu litlu
Mynd: Getty Images
Chievo 0 - 0 Roma

Stuðningsmenn Roma fóru ekki sáttir heim af Stadio Marc'Antonio Bentegodi, heimavelli Chievo, í dag.

Roma mætti Chievo í ítölsku úrvalsdeildinni og var með yfirburði. Roma hélt til að mynda boltanum tæplega 70%, en það er ekki það sem telur, það eru mörkin sem gera það.

Í dag voru engin mörk skoruð og markalaust jafntefli niðurstaðan. Roma er í fjórða sæti deildarinnar, nú fimm stigum frá toppnum. Roa á þó leik til góða. Chievo er um miðja deild með 21 stig.

Þessi leikur var sýndur beint á SportTv en það verða tveir leikir til viðbótar sýndir á stöðinni í dag.

Leikir dagsins:
14:00 Napoli - Fiorentina (SportTV)
14:00 Udinese - Benevento
14:00 Spal - Verona
17:00 Sassuolo - Crotone (SportTV)
19:45 Milan - Bologna (SportTV)



Athugasemdir
banner
banner
banner