Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 11. janúar 2017 22:45
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Claude Puel: Við getum átt góðan leik á Anfield
Claude Puel var ánægður með sína menn
Claude Puel var ánægður með sína menn
Mynd: Getty Images
Claude Puel, þjálfari Southampton var ánægður með sigur sinna manna gegn Liverpool í kvöld. Leikurinn var fyrri leikur liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins.

Puel var ánægður með margt í leik sinna manna, og þá sérstaklega að halda hreinu.

„Þetta var verðskuldaður sigur hjá okkur og við fengum mörg færi. Það var mikilvægt að halda hreinu og við munum eiga góðan leik á Anfield."

„Liverpool átti í raun bara eitt færi í leiknum og við vorum óheppnir að skora ekki fleiri. Seinni leikurinn á útivelli verður mjög erfiður"
sagði glaður Puel.

Southampton hafa tapað þremur leikjum í röð í deildinni og vill Puel nú einbeita sér að deildinni fram að seinni leiknum og fá svipaða frammistöðu þar.
Athugasemdir
banner
banner