Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 11. febrúar 2018 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Hvernig fékk Fekir ekki vítaspyrnu?
Mynd: Getty Images
Nabil Fekir hefur átt mjög gott tímabil með Lyon sem er í baráttu um 2. sæti frönsku deildarinnar þrátt fyrir þrjá tapleiki í röð.

Lyon tapaði óvænt gegn Rennes á heimavelli fyrr í kvöld og er dómarateymi leiksins ekki vinsælt í Lyon þessa stundina.

Heimamenn voru mun betri allan leikinn en gestirnir nýttu færin og unnu með tveimur mörkum gegn engu.

Það var snemma í síðari hálfleik sem Fekir var dansandi kringum varnarmenn Rennes þegar það var augljóslega brotið á honum innan vítateigs.

Amaury Deleure dæmdi ekkert og fékk yfir sig mikil mótmæli frá leikmönnum sem skildu ekkert í ákvörðuninni. Hann spjaldaði þess í stað Fekir og Bertrand Traore, fyrrverandi leikmann Chelsea, fyrir mótmæli.

Myndband af atvikinu er hægt að sjá með því að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner