Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 11. mars 2018 18:52
Ívan Guðjón Baldursson
Pochettino: Son hefur átt frábært tímabil
Frekari fregnir af meiðslunum munu berast á morgun.
Frekari fregnir af meiðslunum munu berast á morgun.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino er ánægður með góðan sigur Tottenham eftir sárt tap gegn Juventus á miðvikudaginn.

Tottenham heimsótti Bournemouth og lenti undir snemma leiks en náði að jafna fyrir hálfleik. Gestirnir komust yfir í síðari hálfleik og innsigluðu sigurinn með tveimur mörkum á lokamínútunum. Son Heung-min skoraði tvö og var besti maður vallarins.

„Þetta var fullkomið svar eftir svekkjandi tap gegn Juventus. Þeir komust yfir en eftir það vorum við betri og verðskulduðum sigurinn," sagði Pochettino.

„Við sýndum sterkan karakter og Son var frábær. Hann hefur átt frábært tímabil, hans besta fyrir félagið hingað til."

Sigurinn gæti þó fallið í skugga af mögulega skelfilegum tíðindum fyrir Tottenham, sem missti Harry Kane í meiðsli í fyrri hálfleik.

„Við vitum ekki neitt fyrr en hann verður skoðaður á morgun. Við vonum að þetta sé ekkert alvarlegt."
Athugasemdir
banner
banner