Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 11. mars 2018 07:45
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Roy Hodgson gríðarlega ánægður með endurkomu Zaha
Mynd: Getty Images
Wilfried Zaha snéri aftur á fótboltavöllinn í gær þegar hann kom inn á í 2-1 tapi Crystal Palace gegn Chelsea.

Zaha lék sinn fyrsta leik í gær síðan 4. febrúar en hann meiddist í viðureign Crystal Palace og Newcastle.

Roy Hodgson knattspyrnustjóri Crystal Palace leyndi því ekkert að hann sé mjög ánægður með endurkomu Zaha.

„Það er frábært að fá hann aftur inn í liðið. Hann þarf að fara varlega, hann er frábær fótboltamaður sem gerir okkur betri en við getum hins vegar ekki haldið að við getum slakað á bara af því hann er kominn til baka."

„Hann er fótboltamaður, ekki töframaður," voru lokaorð Hodgson um Zaha.



Athugasemdir
banner
banner
banner