Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 11. mars 2018 23:11
Ívan Guðjón Baldursson
Sky segir hegðun Carragher óásættanlega
Mynd: Getty Images
Það eru allir að tala um Jamie Carragher eftir að hann hrækti inn um bílrúðu hjá stuðningsmanni Manchester United.

Maðurinn sem um ræðir elti bíl Carragher og gerði grín að Liverpool eftir 2-1 tap gegn Man Utd á laugardaginn.

Carragher tók ekki vel í atið, skrúfaði niður rúðuna og hrækti inn í bíl til mannsins, sem tók allt upp á síma.

Það er óljóst hvaða afleiðingar málið hefur fyrir starf Carragher hjá Sky.

„Þetta er óásættanleg hegðun og við munum fara vel yfir málið með Jamie," sagði talsmaður Sky Sports.
Athugasemdir
banner
banner
banner