Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 12. febrúar 2018 19:57
Ingólfur Stefánsson
Lengjubikarinn: Valur sigraði Njarðvík
Sigurður Egill Lárusson
Sigurður Egill Lárusson
Mynd: Anna Þonn
Valur 3-0 Njarðvík
1-0 Haukur Páll Sigurðsson (73')
2-0 Sigurður Egill Lárusson (82')
3-0 Sigurður Egill Lárusson (90')

Valur og Njarðvík mættust í Lengjubikar karla í kvöld. Liðin eru í riðli 1 ásamt ÍA og Fram en Skagamenn unnu stórsigur á Fram í fyrsta leik.

Eftir markalausan fyrri hálfleik náðu Valsmenn að brjóta ísinn á 73. mínútu.

Haukur Páll Sigurðsson fyrirliði liðsins skoraði markið. Sigurður Egill Lárusson bætti við öðru marki 10 mínútum síðar og hann var svo aftur á ferðinni á 90. mínútu þegar hann gulltryggði sigurinn með marki úr vítaspyrnu.

Valsmenn fara upp að hlið ÍA á toppi riðilsins með sigrinum.
Athugasemdir
banner
banner