Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 12. apríl 2014 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sky 
Dýrasti maður Tottenham líklega frá út tímabilið
Erik Lamela hefur ekki fagnað mörgum mörkum á tímabilinu
Erik Lamela hefur ekki fagnað mörgum mörkum á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Tim Sherwood segist ekki búast við að Erik Lamela, dýrasti leikmaður sem hefur verið keyptur til Tottenham, spili aftur með liðinu á tímabilinu vegna bakmeiðsla.

Lamela kom til Tottenham síðasta sumar og er bara búinn að koma við sögu í 17 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.

,,Hann er ekki í leikformi. Hann hefur verið óheppinn með meiðsli og það er synd að hann sé að meiðast reglulega því hann þarf einnig að aðlagast umhverfinu betur," sagði Sherwood.

,,Hann hefur misst mikinn aðlögunartíma vegna meiðsla, það er erfitt að læra á nýja deild án þess að spila. Hann mun líklega ekki spila aftur á tímabilinu."
Athugasemdir
banner
banner