Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 12. apríl 2014 16:17
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Keflavík í 8-liða úrslit
Stjörnumenn unnu sinn riðil og eru komnir í 8-liða úrslitin
Stjörnumenn unnu sinn riðil og eru komnir í 8-liða úrslitin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveimur leikjum var að ljúka í A-deild Lengjubikars karla þar sem Grindvíkingar gerðu markalaust jafntefli við Skagamenn og gerðu liðin þar með út um vonir sínar á að komast í 8-liða úrslitin.

Keflvíkingar komast áfram upp úr riðlinum ásamt toppliði KR og Blikum sem eru í öðru sæti og eiga leik inni við Aftureldingu.

Í riðli 3 voru það Stjörnumenn sem gerðu út um Ólafsvíkinga með fjögurra marka sigri og komast þeir í 8-liða úrslitin ásamt Víking R. sem er í öðru sæti riðilsins.

Ef ÍBV tekst að leggja Hauka af velli í leik liðanna í dag komast Eyjamenn einnig áfram í útsláttarkeppnina.

Riðill 1:
Grindavík 0 - 0 ÍA

Riðill 3:
Stjarnan 4 - 0 Víkingur Ó.
1-0 Heiðar Ægisson ('14)
2-0 Snorri Páll Blöndal ('75)
3-0 Baldvin Sturluson ('78)
4-0 Veigar Páll Gunnarsson ('89)
Athugasemdir
banner
banner
banner