Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mið 12. nóvember 2014 22:40
Magnús Már Einarsson
skrifar frá Brussel
Alfreð: Spenntur að vinna með Moyes
Icelandair
Alfreð fagnar marki sínu.
Alfreð fagnar marki sínu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alfreð Finnbogason skoraði mark Íslands í 3-1 tapinu gegn Belgíu í vináttulandsleik í kvöld. Alfreð jafnaði í 1-1 en þannig var staðan í hálfleik.

„Það hefði verið gaman hefðum við getað strítt þeim aðeins lengur og skorað fleiri mörk. Mér fannst við eiga góðan leik," sagði Alfreð en Thibaut Courtois, markvörður Belga, kom í veg fyrir að Ísland næði að skora fleiri mörk.

„Það er engin tilviljun að hann er þar sem hann er í dag. Á annan markvörð hefðum við getað skorað tvö til þrjú mörk í viðbót. Við áttum flott upphlaup og sóknarleikurinn í góðu lagi."

„Við erum komnir á þann stall að við viljum alltaf vinna fótboltaleiki, þess vegna erum við ekki alveg 100% sáttir."

Alfreð spilar með Real Sociedad sem hefur farið illa af stað á Spáni en þjálfaraskipti hafa orðið hjá félaginu og er Skotinn David Moyes tekinn við stjórnartaumunum. Hvernig lýst Alfreð á það?

„Bara mjög vel. Ég þekki lítið til hans en það sem maður hefur heyrt er jákvætt. Ég er spenntur að vinna með honum. Við höfum verið að spila langt undir væntingum."

Viðtalið má sjá í heild hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner