Fótbolti.net og listamaðurinn Tolli tóku höndum saman í desember og buðu upp málverk eftir Tolla hér á vefnum. +
Hæsta boð þegar lokað var á tilboð í málverkið stóð í 682 þúsund krónum en fyrirfram var ákveðið að öll upphæðin myndi renna til Samhjálpar.
Hæsta boð þegar lokað var á tilboð í málverkið stóð í 682 þúsund krónum en fyrirfram var ákveðið að öll upphæðin myndi renna til Samhjálpar.
Vörður Leví Traustason framkvæmdastjóri Samhjálpar hitti Tolla við þetta tilefni og tók á móti greiðslunni frá hæstbjóðanda. Hann hélt þar stutta ræðu og þakkaði Fótbolta.net og tolla fyrir frábæran stuðning með þessu framlagi.
Þetta var annað árið í röð sem Fótbolti.net og Tolli stóðu sameiginlega að slíku uppboði. Fótbolti.net er þakkláttur fyrir velvild Tolla með þessu samstarfi og mikil ánægja að geta látið gott af okkur leiða í jólamánuðinum.
Athugasemdir