Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 14. mars 2018 20:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Messi með sitt fljótasta mark á ferlinum
Mynd: Getty Images
Lionel Messi kom Barcelona yfir gegn Chelsea í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Seinni leikur liðanna fer fram á Nývangi í Katalóníu þessa stundina. Fyrri leikurinn endaði 1-1.

Messi var búinn að koma Börsungum yfir en markið hjá honum var virkilega snyrtilegt. Messi var í mjög þröngu færi en tókst að klobba Thiabut Courtois, markvörð Chelsea.

Smelltu hér til að sjá markið.

Markið var það fljótasta sem Messi skorar á ótrúlegum ferli. Það kom eftir tvær mínútur og átta sekúndur.

Staðan er 2-0 fyrir Barcelona í leiknum þar sem Ousmane Dembele bætti við marki nokkrum mínútum síðar.



Athugasemdir
banner
banner
banner