Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 14. apríl 2018 18:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jóhann Berg sneri úr meiðslum og hlýtur ágætis dóma
Jóhann Berg í leiknum í dag.
Jóhann Berg í leiknum í dag.
Mynd: Getty Images
Jóhann Berg Guðmundsson átti fínan leik fyrir Burnley í 2-1 sigri á Leicester í dag.

Jóhann Berg var að snúa aftur eftir að hafa misst af tveimur leikjum í röð vegna meiðsla.

Íslenski landsliðsmaðurinn var ekki lengi að láta til sín taka því hann lagði upp mark á níundu mínútu er hann sendi hornspyrnu fyrir sem Kevin Long skallaði í markið.

Jóhann hlýtur ágætis dóma frá ensku pressunni fyrir sína frammistöðu.

Sky Sports gefur Jóa Berg 7 einkunn og þá gefur Daily Mail honum einkunn upp á 6,5.

Burnley hefur unnið fimm leiki í röð og er í góðum mögueika á því að spila í Evrópukeppni á næsta tímabili.



Athugasemdir
banner
banner
banner