Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 15. október 2017 06:00
Kristófer Jónsson
Manchester City skoðar bakvörð Espanyol
Mynd: Getty Images
Aaron Martin, vinstri bakvörður Espanyol, er undir smásjá Manchester City þessa stundina. Þessi tvítugi Spánverji var nálægt því að ganga í raðir þeirra í sumar áður en að Manchester City keypti Benjamin Mendy.

Benjamin Mendy fór vel af stað í ensku úrvalsdeildinni áður en að hann meiddist og er nú útlit fyrir að hann muni vera frá keppni allt tímabilið. Svo gæti því orðið að Manchester City reyni að klófesta Martin í janúarglugganum.

Þeir þurfa hins vegar að hafa hraðar hendur þar sem að erkifjendur þeirra í Manchester United hafa einnig augastað á leikmanninum.
Athugasemdir
banner
banner