Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 16. mars 2018 09:27
Magnús Már Einarsson
Hallbera í Pepsi-mörkunum í sumar
Reynir Leós kemur aftur inn
Hallbera verður í Pepsi-mörkunum í sumar.
Hallbera verður í Pepsi-mörkunum í sumar.
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Íslenska landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir verður ein af álitsgjöfunum í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport í sumar. Hallbera er fyrsta konan sem verður álitsgjafi í Pepsi-mörkum karla í sögu þáttarins.

Reynir Leósson verður einnig sérfræðingur í Pepsi-mörkunum á nýjan leik en hann var í þættinum árið 2012.

Hörður Magnússon er áfram umsjónarmaður þáttarins en álitsgjafarnir verða sex talsins og undanfarna daga hafa þeir verið kynntir.

Freyr Alexandersson, Indriði Sigurðsson og Gunnar Jarl Jónsson hafa verið kynntir sem sérfræðingar í vikunni.

Boðaðar hafa verið að miklar breytingar verði á þættinum, meðal annars þegar kemur að grafík og leikgreiningum.

Þá munu leikmenn og þjálfarar koma í settið en Rúnar Kristinsson verður gestur í fyrsta þætti.




Athugasemdir
banner
banner