Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 16. maí 2016 20:44
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Sheffield Wednesday í úrslit
Ross Wallace fagnar jöfnunarmarki sínu fyrir Sheffield Wednesday.
Ross Wallace fagnar jöfnunarmarki sínu fyrir Sheffield Wednesday.
Mynd: Getty Images
Brighton 1 - 1 Sheffield Wednesday
1-0 Lewis Dunk ('19)
1-1 Ross Wallace ('28)

Brighton þurfti að vinna með tveggja marka mun eða meira þegar Sheffield Wednesday kíkti í heimsókn í undanúrslitaleik umspils Championship deildarinnar.

Leikurinn byrjaði vel fyrir heimamenn sem komust yfir strax á 19. mínútu með marki frá Lewis Dunk.

Ross Wallace var þó ekki lengi að jafna, þvert gegn gangi leiksins, og var staðan jöfn í hálfleik.

Heimamenn í Brighton sóttu í sig veðrið allan leikinn en tókst ekki að bæta öðru marki við og ljóst að Sheffield er félagið sem mætir annað hvort Hull City eða Derby County í úrslitaleik um hvaða lið fer upp í úrvalsdeildina.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner