Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 16. júní 2018 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
4. deild: Jafnt hjá Birninum og KB
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Björninn 1 - 1 KB
1-0 Kristjón Geir Sigurðsson ('41)
1-1 Ásbjörn Freyr Jónsson ('90)

Það var einn leikur í 4. deild karla. Hann var í A-riðli og fór fram á gervigrasvelli Fjölnis.

Björninn fékk KB í heimsókn en fyrsta mark leiksins kom á 41. mínútu og var það Kristjón Geir Sigurðsson sem gerði það. Björninn virtist vera að sigla sigrinum heim en í uppbótartímanum tókst KB að jafna með marki Ásbjarnar Freys Jónssonar.

Lokatölur 1-1, eitt stig á bæði lið. Björninn er með fjögur stig eftir fjóra leiki en þetta var fyrsta stig KB í sumar.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner