Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 16. júlí 2014 11:45
Magnús Már Einarsson
Tilboð Chelsea í FIlipe Luis samþykkt
Filipe Luis.
Filipe Luis.
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid hefur samþykkt tilboð Chelsea í vinstri bakvörðinn Filipe Luis.

Talið er að kaupverðið hljóði upp á tuttugu milljónir punda.

Luis var frábær hjá Atletico Madrid á síðasta tímabili þegar liðið varð spænskur meistari og fór í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Þessi 28 ára gamli leikmaður ætti að ganga í raðir Chelsea á næstu dögum ef ekkert óvænt kemur upp á.

Ashley Cole fór frá Chelsea til Roma á dögunum og því hefur Jose Mourinho verið í leit að nýjum vinstri bakverði.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner